5. mars 2020

Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa OR

Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 3. mars 2020. Gefin voru út skuldabréf í flokkunum OR020934 GB og OR180255 GB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 2. september 2034 og 18. febrúar 2055.

Í heildina bárust tilboð upp á 3.000 m.kr. að nafnvirði í flokkana.

Heildartilboð í  OR 020934 GB  voru samtals 900 m. kr. á bilinu 1,31% – 1,35%. Tilboðum að fjárhæð 600 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,32%. Heildartilboð í  OR180255 GB voru samtals 2.100 m. kr. á bilinu 1,38% – 1,43%. Tilboðum að fjárhæð 1.740 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,40%.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á „sustainable bond“ markaði Nasdaq á Íslandi.

Nánari upplýsingar veita:

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, netfang: ingvar.stefansson@or.is.

Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is