Um Fossa
Fossar er fjárfestingarbanki sem þjónustar innlenda og erlenda fjárfesta á sviði miðlunar fjármálagerninga, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar. Fossar tilheyra samstæðu Skaga. Fossar leggja mikla áherslu á fagmennsku, árangur og traust. Starfsmenn Fossa eru reyndir sérfræðingar með viðamikla reynslu á bæði innlendum og erlendum fjármálamörkuðum.
Starfsleyfi
Fossar hafa starfsleyfi sem lánafyrirtæki samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Starfsleyfi félagsins tekur til móttöku endurgreiðanlegra fjármuna frá almenningi, útlána fjárfestingarþjónustu og fjárfestingastarfsemi, þ.e. móttöku og miðlunar fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga, framkvæmdar fyrirmæla fyrir hönd viðskiptavina, eignastýringar, fjárfestingaráðgjafar, umsjónar með útboði fjármálagerninga án sölutryggingar sem og töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum markaði. Þá hefur félagið heimild til að veita viðbótarþjónustu, s.s. vegna vörslu og umsýslu í tengslum við einn eða fleiri fjármálagerninga fyrir reikning viðskiptavinar.
Tengd félög
Félög sem hafa náin tengsl við Fossa í skilningi greinar 4.2. í viðskiptaskilmálum Fossa um fjárfestingarþjónustu eru eftirfarandi
- Vátryggingafélag Íslands hf., móðurfélag Fossa (100%)
- Glymur hf., dótturfélag Fossa (100%)
- SIV eignastýring hf., systurfélag Fossa
- Líftryggingafélag Íslands hf., systurfélag Fossa