1. apríl 2020

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf á fyrsta ársfjórðungi

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf í mars.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í mars var 17,6% í skuldabréfum og 16,4% í hlutabréfum og samsvarandi 9,3% og 12,1% í öllum viðskiptum.

Á fyrsta ársjórðungi 2020 voru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf með 20,0% hlutdeild, samsvarandi hlutdeild í hlutabréfum nam 18,3%.

Heildarvelta í mars nam 637 milljörðum króna í skuldabréfum og 150 milljörðum króna í hlutabréfum.