Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í bæði hlutabréfum og skuldabréfum í febrúar.
Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í febrúar var 25,4% í skuldabréfum og 22,2% í hlutabréfum og samsvarandi 15,6% og 15,7% í öllum viðskiptum.
Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf með 21,9% hlutdeild, samsvarandi hlutdeild í hlutabréfum nemur 19,3%.
Heildarvelta í febrúar nam 274 milljörðum króna í skuldabréfum og 139 milljörðum króna í hlutabréfum.
Meirihluti veltu fer í gegnum tilkynnt viðskipti. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 50,0% af heild í skuldabréfum og 64,8% í hlutabréfum.