Fossar markaðir hf. voru með sterka hlutdeild í kauphöllinni á fyrsta árshluta 2017, í viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf. Fossar voru einnig umsvifamiklir í Kauphöllinni í júnímánuði einum og sér.
Fossar voru leiðandi í tilkynntum viðskiptum á fyrri hluta árs 2017 með 15,9% hlutadeild í skuldabréfum og 17,0% í hlutabréfum.
Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í júní var 15,4% í skuldabréfum og 18,7% í hlutabréfum og samsvarandi 11,4% og 13,3% í öllum viðskiptum. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 116 milljörðum króna í júní og 658 milljörðum á fyrri helmingi ársins. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 49 milljörðum í mánuðinum, en 367 milljörðum á fyrri hluta ársins.