Fossar
4. október 2022

Fossar með mesta hlutdeild í september

Fossar fjárfestingarbanki hf. var stærstur í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf og hlutabréf í september.

Hlutdeild Fossa í tilkynntum viðskiptum í september var 31,4% í skuldabréfum og 19,0% í hlutabréfum og samsvarandi 21,7% og 13,2% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf, með 23,8% hlutdeild í skuldabréfum og 15,5% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í september nam 262 milljörðum króna í skuldabréfum og 206 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 57,9% af heild í skuldabréfum og 71,6% í hlutabréfum.