2. ágúst 2018

Fossar með mesta hlutdeild í Kauphöllinni í júlí

Fossar markaðir hf. viðhalda umsvifum í Kauphöllinni, og voru stærstir í hlutabréfaviðskiptum í júlí.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í júlí var 12,9% í skuldabréfum og 50,0% í hlutabréfum og samsvarandi 10,2% og 34,9% í öllum viðskiptum. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 139 milljörðum króna. Heildarviðskipti á hlutabréfamarkaði námu 70 milljörðum í mánuðinum.