1. febrúar 2021

Fossar markaðir með mestu hlutdeild í janúar

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í bæði hlutabréfum og skuldabréfum í janúar.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í janúar var 23,6% í skuldabréfum og 36,7% í hlutabréfum og samsvarandi 15,6% og 30,5% í öllum viðskiptum.

Heildarvelta í janúar nam 281 milljörðum króna í skuldabréfum og 168 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 53,1% af heild í skuldabréfum og 79,3% í hlutabréfum.