4. mars 2019

Fossar markaðir efna til skuldabréfaútboðs fyrir Reykjavíkurborg n.k. miðvikudag, 6. mars

Reykjavíkurborg efnir til skuldabréfaútboðs á skuldabréfaflokknum RVKG 48 1 næstkomandi miðvikudag, 6. mars.
Heimild til lántöku á árinu 2019 er 5.500 m.kr. Engin lán hafa verið tekin það sem af er ári og er því ónýtt heimild 5.500 m.kr.

Heildarstærð RVKG 48 1 fyrir þetta útboð nemur alls 4.100 m.kr. að nafnvirði. Skuldabréfin eru verðtryggð með jöfnum greiðslum til 30 ára með greiðslu afborgana og vaxta á 6 mánaða fresti.

Tilgangur útgáfunnar er að fjármagna græn fjárfestingarverkefni í samræmi við Grænan ramma Reykjavíkurborgar. Ramminn fylgir svokölluðum „green bond principles,“ viðmiðum útgefnum af ICMA, alþjóðasamtökum aðila á verðbréfamarkaði og hefur CICERO veitt óháð álit á rammanum (e. second opinion). Samkvæmt áliti CICERO fær Græni rammi Reykjavíkurborgar hæstu einkunn, dark green, og allir undirflokkar og verkefni fá einnig dark green einkunn. Litið er sérstaklega til stjórnsýslulegs fyrirkomulags sem fær einnig hæstu einkunn, excellent.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að ákvarða fjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.