Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum á morgun, þriðjudaginn 26. febrúar.
Boðin verða til sölu skuldabréf í eftirfarandi flokkum:
• REITIR151244: Verðtryggð jafngreiðslubréf til tæplega 26 ára. Áður útgefin að nafnverði 37.405.200.000 kr.
• REITIR151124: Verðtryggð jafngreiðslubréf til tæplega 6 ára. Áður útgefin að nafnverði 8.350.000.000 kr
• REITIR 22: Óverðtryggð eingreiðslubréf til tæplega 4 ára. Áður útgefin að nafnverði 1.155.000.000 kr
Fossar markaðir hf. hafa umsjón með útboðinu.
Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er í hverjum flokki. Heildarstærð útboðsins getur verið allt að 7.145 milljónir kr. að nafnvirði. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er föstudagurinn 1. mars 2019.
Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.
Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 699-4416, og Matei Manolescu, skuldabréfamiðlun Fossa markaða, netfang: matei.manolescu@fossar.is, sími: 522 4008.