Síminn hf. lauk í gær útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN231024
Heildartilboð í flokkinn námu samtals 2.180 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 8,70 – 8,92%.
Tilboðum að fjárhæð 1.100 m.kr. að nafnvirði var tekið á 8,87% flötum vöxtum.
Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 25. apríl 2023. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland í kjölfarið.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar veitir:
Ásgrímur Gunnarsson
Markaðsviðskipti
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 522 4000
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is.