12. júlí 2019

Fossar ljúka víxlaútboði fyrir Lykil fjármögnun

Lykill fjármögnun hefur lokið útboði á 6 mánaða víxlum í nýjum flokki, LYKILL200115. Heildareftirspurn í útboðinu nam 620 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 460 m.kr.

Víxlarnir voru seldir á 4,90% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 15. júlí 2019.

Fossar markaðir höfðu umsjón með útboðinu.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 15. júlí 2019.

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, Fossar markaðir hf., dadi.kristjansson@fossar.is, s: 840 4145
Sighvatur Sigfússon, sviðsstjóri Fjármálasviðs Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s: 540 1700