4. maí 2018

Fossar ljúka vel heppnuðu skuldabréfaútboði fyrir OR

Fossar markaðir höfðu umsjón með útboði Orkuveitu Reykjavíkur, sem lauk í gær, 3.maí 2018.

Heildareftirspurn í útboðinu nam samtals 1.300 m. kr. að nafnverði.

Heildartilboð í flokkinn OR090546 voru samtals 720 m. kr. á bilinu 2,80% – 2,86%. Öll í tilboð í flokkinn OR090546 voru samþykkt.

Heildartilboð í flokkinn OR090524 voru samtals 580 m. kr. á bilinu 2,70% – 2,90%. Tilboðum að fjárhæð 280 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,82%.