16. mars 2018

Fossar ljúka vel heppnuðu skuldabréfaútboði fyrir OR

Fossar markaðir höfðu umsjón með útboði Orkuveitu Reykjavíkur, sem lauk í gær, 15. mars 2018.

Heildareftirspurn í útboðinu nam samtals 3.075 m. kr. að nafnverði.

Heildartilboð í flokkinn OR090546 voru samtals 1.720 m. kr. á bilinu 2,75% – 2,91%. Tilboðum að fjárhæð 820 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,83%.

Heildartilboð í flokkinn OR090524 voru samtals 1.355 m. kr. á bilinu 2,64% – 2,75%. Tilboðum að fjárhæð 755 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,70%.