22. nóvember 2024

Fossar fjárfestingarbanki hf.: Niðurstaða útboðs víxla

Fossar fjárfestingarbanki hf. lauk víxlaútboði í gær. Bankanum bárust tilboð að nafnverði 1.080 m.kr. á bilinu 9,25% – 9,45% flötum vöxtum, þar sem vegnir meðalvextir voru 9,39%.

Samþykkt tilboð í 6 mánaða víxlaflokkinn FOS 25 0530 voru samtals 1.000 m.kr. á 9,45% flötum vöxtum.

Umsjón með útboðinu höfðu markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka.

Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 29. nóvember 2024.

Nánari upplýsingar:

Ernir Jónsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4002
Netfang: ernir.jonsson@fossar.is

Ásgrímur Gunnarsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4040
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is