Fossar mynd 1
22. nóvember 2023

Fossar fjárfestingarbanki efnir til víxlaútboðs í dag

Fossar fjárfestingarbanki hf. efnir til víxlaútboðs í dag, miðvikudaginn 22. nóvember

Boðnir verða til sölu víxlar í 6 mánaða flokki FOS 24 0530 með lokagjalddaga þann 30. maí 2024. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötu vöxtum. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr.

Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um tilboðsfjárhæð og flata vexti, skal skilað til Fossa fjárfestingarbanka fyrir kl. 17:00 í dag, miðvikudaginn 22. nóvember 2023, á netfangið utbod@fossar.is.

Uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 30. nóvember (t+6), sem er jafnframt lokagjalddagi 1.080 m.kr. víxilsins FOS 23 1130. Niðurstaða útboðsins verður tilkynnt fljótlega að loknu útboði.

Nánari upplýsingar:

Ásgrímur Gunnarsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4040
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is

Ernir Jónsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4002
Netfang: ernir.jonsson@fossar.is