Stjórn Bláa Lónsins hf. hefur tekið ákvörðun um að hefja undirbúning að skráningu félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland og hefur til þess ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Fossa fjárfestingarbanka og Landsbankans.
Félagið stefnir á skráningu á næsta ári en endanleg ákvörðun verður háð framvindu undirbúningsvinnu og eftir því sem markaðsaðstæður leyfa.
Bláa Lónið er leiðandi fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu og hefur getið sér gott orð á húðvörumarkaði en vörumerki þess er sterkt á alþjóðavísu.
Bláa Lónið var stofnað árið 1992. Hjá félaginu starfa nú um 700 manns.