27. ágúst 2025

Arnar, Eiríkur, Ástrós og Arnór til liðs við Fossa

Fossar fjárfestingarbanki hafa ráðið Arnar Friðriksson í teymi fjárstýringar og Eirík Jóhannsson í teymi markaðsviðskipta. Í fyrirtækjaráðgjöf bankans er Ástrós Björk Viðarsdóttir nýr verkefnastjóri og Arnór Brynjarsson sérfræðingur.

Arnar Friðriksson starfaði hjá verðbréfamiðlun Íslandsbanka áður en hann gekk til liðs við Fossa.

Arnar er með B.Sc-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.fin-gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands. Þá hefur hann lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Eiríkur Jóhannsson starfaði í markaðsviðskiptum hjá Íslenskum verðbréfum hf. frá 2023 áður en hann hóf störf hjá Fossum. Hjá Íslenskum verðbréfum starfaði hann einnig í eignastýringu 2020 til 2023 og við miðlun aflaheimilda 2019 til 2020. Þar áður starfaði hann við miðlun aflaheimilda hjá Viðskiptahúsinu Sjávarútvegi ehf.

Eiríkur hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Ölfugt teymi í fyrirtækjaráðgjöf

Ástrós Björk býr að yfir tuttugu ára reynslu á fjármálamarkaði, aðallega í fyrirtækjaráðgjöf þar sem hún hefur stýrt og tekið þátt í fjölmörgum veigamiklum verkefnum í íslensku atvinnulífi. Hún hefur einnig reynslu sem fjármálastjóri og framkvæmdastjóri, meðal annars sem fjármálastjóri fasteignafélagsins Íþöku.

Á árunum 2004 til 2013 starfaði Ástrós í Landsbankanum, fyrst við greiningu á fyrirtækjum og efnahagsmálum en síðar í fyrirtækjaráðgjöf. 2013 færði hún sig yfir í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og starfaði þar til 2021.

Ástrós er með grunn og framhaldsmenntun í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að hafa lokið námi í verðbréfaviðskiptum.

Arnór kemur til Fossa frá KPMG í Kaupmannahöfn þar sem hann starfaði við fyrirtækjaráðgjöf á árunum 2022-2025. Þar áður starfaði hann sem greinandi hjá Copenhagen Offshore Partners, á fjármálasviði Arion Banka og sem dæmatímakennari við Háskólann í Reykjavík.

Arnór er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavik og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Copenhagen Business School. Þá hefur hann lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.