Þórunn Ólafsdóttir

Framkvæmdastjóri rekstrar- og þróunarsviðs

Þórunn Ólafsdóttir er fædd árið 1988. Hún hefur gegnt starfi yfirlögfræðings Fossa fjárfestingarbanka hf. frá árinu 2019 og tók sæti í framkvæmdastjórn bankans árið 2022. Í október 2025 tók Þórunn við starfi framkvæmdastjóra rekstrar- og þróunarsviðs og fer jafnframt með yfirstjórn lögfræðisviðs bankans.

Áður en Þórunn gekk til liðs við Fossa fjárfestingarbanka hf. starfaði hún sem lögmaður á sviði fyrirtækja- og skattaréttar. Hún var eigandi og lögmaður hjá SKR lögfræðiþjónustu slf., starfaði sem sérfræðingur á skatta- og lögfræðisviði Deloitte ehf. og sem lögfræðingur hjá Nordik lögfræðiþjónustu slf. og H.F. Verðbréfum hf. Samhliða lögmannsstörfum hefur Þórunn kennt skattarétt við Háskólann í Reykjavík.

Þórunn lauk grunn- og meistaranámi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi