Steingrímur Arnar Finnsson

Steingrímur Arnar Finnsson

Forstjóri

Steingrímur er forstjóri Fossa fjárfestingarbanka hf.

Steingrímur hefur rúmlega 20 ára reynslu á fjármálamarkaði. Steingrímur er einn þriggja stofnenda Fossa árið 2015 en fyrir þann tíma gegndi hann stöðu forstöðumanns innan markaðsviðskipta Straums fjárfestingabanka. Frá 2006 til 2011 starfaði Steingrímur í markaðsviðskiptum Kaupþings og síðar Arion banka, fyrst á gjaldeyris- og afleiðuborði og síðan í skuldabréfamiðlun. Þar áður starfaði hann í greiningardeild Kaupþings banka.

Steingrímur er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.