Hreggviður Ingason

Forstöðumaður
Safnastýring

Hreggviður Ingason er forstöðumaður safnastýringar hjá eignastýringu Fossa fjárfestingarbanka.

Áður en Hreggviður gekk til liðs við Fossa fjárfestingarbanka árið 2021 starfaði hann frá árinu 2016 sem forstöðumaður eignastýringar hjá Lífsverk lífeyrissjóð. Þar áður hafði Hreggviður umsjón með uppgjöri afleiðusafns Glitnis frá 2010 til 2016 og var forstöðumaður fjárstýringar VBS fjárfestingarbanka á árunum 2007 til 2010. Samhliða störfum hefur hann meðal annars sinnt stundakennslu við Háskólann í Reykjavík og setið sem sérfróður meðdómsmaður í fjölda dómsmála sem hafa krafist sérfræðiþekkingar á sviði fjármála.

Hreggviður er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hann lauk meistaragráðu í hagfræði frá Boston University árið 2005 og útskrifaðist einnig með meistaragráðu í fjármálastærðfræði frá University of Warwick í Bretlandi árið 2006. Auk þess hefur Hreggviður lokið námi í verðbréfaviðskiptum.