Guðný Helga Herbertsdóttir

Varameðlimur í stjórn

Guðný Helga er varameðlimur í stjórn Fossa fjárfestingarbanka.

Guðný Helga er forstjóri VÍS og hefur tekið þátt þróun og stefnumótun VÍS undanfarin ár en hún hefur verið í framkvæmdastjórn félagsins síðan 2017. Hún var framkvæmdastjóri sölu og þjónustu og framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar þar sem hún stýrði m.a. stafrænni umbreytingu félagsins.

Guðný Helga er með stjórnunargráðu (AMP) frá IESE í Barcelona á Spáni. Hún er jafnframt með meistaragráðu frá Viðskiptaháskólanum í Árósum í Danmörku og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.