Guðmundur Magnússon er regluvörður Fossa fjárfestingarbanka hf.
Guðmundur kemur til Fossa frá regluvörslu Kviku banka þar sem hann gegndi síðast stöðu staðgengils regluvarðar. Þar áður starfaði Guðmundur sem lögfræðingur í regluvörslu Kviku banka.
Guðmundur lauk grunn- og meistaranámi frá lagadeild Háskólans í Reykjavík. Guðmundur hefur jafnframt lokið B.Sc. í sálfræði frá Háskóla Íslands.