16. október 2020

Fyrsta græna nafnvaxtaskuldabréfið gefið út á Íslandi

Orkuveita Reykjavíkur gaf í gær út nýjan grænan skuldabréfaflokk með auðkennið OR231023 GB. Þetta er jafnframt fyrsti óverðtryggði græni skuldabréfaflokkur sem gefinn hefur verið út á Íslandi.

Skuldabréfin eru með vaxtagreiðslufyrirkomulagi og bera 2,8% vexti sem greiðast fjórum sinnum á ári fram að lokagjalddaga þann 23. október 2023.

Seld voru skuldabréf að fjárhæð 3.000 m.kr. að nafnvirði.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:

Ingvar Stefánsson
Framkvæmdastjóri fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: ingvar.stefansson@or.is

Matei Manolescu
Markaðsviðskipti, Fossar markaðir
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is