Lagalegir fyrirvarar

Tölvupóstsendingar

Efni þessa tölvupósts og viðhengja kann að vera trúnaðarmál. Ef sá sem tekur við þessum tölvupósti er ekki réttur viðtakandi er hann vinsamlegast beðinn um að tilkynna sendanda og eyða tölvupóstinum og viðhengjum án þess að afrita, dreifa eða notfæra sér þau á nokkurn hátt. Sé efni þessa tölvupósts og viðhengja ótengt starfsemi Fossa fjárfestingarbanka hf. er sendandi einn ábyrgur. Óheimil notkun getur varðað bótaábyrgð og refsingu.

Fossar fjárfestingarbanki hf. ber ekki ábyrgð á rangri eða ófullgerðri sendingu upplýsinganna sem tölvupósturinn inniheldur, né heldur töfum á afhendingu hans eða tjóni sem kann að verða á tölvukerfi þínu vegna móttöku hans. Fossar fjárfestingarbanki hf. ábyrgist ekki öryggi tölvupóstsins né að hann sé laus við vírusa eða að afskipti eða íhlutun þriðja aðila hafi ekki átt sér stað.

Upplýsingar um fyrirtæki eða fjármálagerninga hafa eingöngu upplýsingagildi og fela á engan hátt í sér tilboð eða ráðleggingar um kaup eða sölu verðbréfa eða þátttöku í fjárfestingum.

 

Vefsíða

Upplýsingar á vefsíðu Fossa fjárfestingarbanka hf. (hér eftir „Fossar“ eða „félagið“) eru birtar samkvæmt bestu vitund Fossa á hverjum tíma og er ekki tekin ábyrgð á viðskiptum sem gerð eru á grundvelli þeirra. Fossar ábyrgjast ekki réttmæti upplýsinganna hvort sem þær koma frá félaginu eða þriðja aðila. Fossum er ekki skylt að uppfæra það sem fram kemur á vefsíðunni og upplýsingarnar kunna að breytast án fyrirvara.

Upplýsingar á vefsíðu Fossa eru almenns eðlis og fela á engan átt í sér tilboð eða ráðleggingar um kaup eða sölu tiltekinna fjármálagerninga. Notendur vefsíðunnar bera einir ábyrgð á fjárfestingarákvörðunum sem teknar eru á grundvelli þeirra upplýsinga sem birtast á vefsíðunni. Fossar kunna þó að veita ráðgjöf til viðskiptavina í gegnum vefinn um kaup eða sölu fjármálagerninga enda kemur þá skýrt fram á vefnum að um ráðgjöf sé að ræða. Upplýsingar og ráðgjöf Fossa á vefnum miðast ekki við ákveðin fjárfestingarmarkmið, ákveðna fjárhagsstöðu eða sérhagsmuni tiltekinna notenda og eru ávallt almenns eðlis þar sem ekki er hægt að taka tillit til aðstæðna hvers og eins. Fossar bera ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af slíkri upplýsinga- eða ráðgjöf félagsins.

Fossar bera ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til upplýsinga sem birtast á vefsíðu Fossa né heldur á tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vefsíðu félagsins. Fossar bera ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefsíðuna um lengri eða skemmri tíma.

Fossar eiga höfundarrétt á upplýsingum sem birtast á vefsíðunni nema annað sé tekið fram eða verði leitt af eðli máls. Óheimilt er að dreifa upplýsingunum, afrita þær eða nýta með öðrum hætti án skriflegs samþykkis Fossa. Ekki skiptir máli hvers eðlis eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta þær, afrita þær eða dreifa þeim. Viðskiptavinum Fossa er þó heimilt að vista slíkar upplýsingar til einkanota.

Viðskipti með fjármálagerninga eru áhættusöm í eðli sínu. Verðbreytingar í fortíð gefa ekki endilega vísbendingu um verðbreytingar í framtíð. Fossar hvetja viðskiptavini sína til að afla sér upplýsinga um eðli viðskipta með fjármálagerninga og eftir atvikum annað sem viðkemur viðskiptum með fjármálagerninga hjá ráðgjöfum félagsins.

Framangreindir fyrirvarar eiga einnig við um allar upplýsingar og efni sem sett er af hálfu Fossa inn á samfélagsmiðla ef við á.

 

Upptaka símtala, geymsla og vistun gagna

Í því skyni að tryggja öryggi viðskiptavinar og Fossa er viðskiptavini kunnugt um að viðskiptasímtöl við félagið kunna að vera hljóðrituð án sérstakrar tilkynningar í hvert sinn. Hið sama gildir um samtöl í gegnum aðra rekjanlega miðla, til dæmis Bloomberg, Outlook og Teams. Ekki er ábyrgst að öll símtöl séu hljóðrituð.

Símaupptökur eru gerðar á grundvelli heimildar í lögum um fjarskipti og skyldu samkvæmt 2. mgr. 23. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga. Viðskiptavini er kunnugt um að upptökur kunna að verða lagðar fram í dómsmáli og/eða notaðar sem sönnunargagn í öðrum tilvikum komi upp ágreiningur um hvað aðilum fór á milli. Að öðru leyti skulu Fossar fara með upptökur líkt og með aðrar upplýsingar er lúta þagnarskyldu, sbr. 58. – 60. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Öll gögn sem innihalda upplýsingar um viðskipti viðskiptavina og framkvæmd þeirra eru vistuð hjá Fossum í að lágmarki fimm ár.