1. mars 2018

Fossar viðhalda sterkri stöðu í kauphöllinni í febrúar

Fossar markaðir hf. viðhalda miklum umsvifum í Kauphöllinni í tilkynntum viðskiptum með bæði hlutabréf og skuldabréf í febrúar.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í febrúar var 13,8% í skuldabréfum og 14,6% í hlutabréfum og samsvarandi 9,8% og 10,7% í öllum viðskiptum. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 94 milljörðum króna. Heildarviðskipti á hlutabréfamarkaði námu 56 milljörðum í mánuðinum.