9. október 2025

Fossar umsjónaraðili Símans og Orkuveitunnar

Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í gær, 8. október 2025. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR031033 GB, OR0280845 GB og OR180255 GB. Samtals bárust tilboð að nafnverði 1.815 m.kr.

OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 9.950 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.315 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 8,00-8,05%. Tilboðum að fjárhæð 1.315 m.kr. að nafnvirði var tekið á
ávöxtunarkröfunni 8,05%.

OR280845 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 28. ágúst 2045. Flokkurinn ber 3,70% fasta vexti og er uppgreiðanlegur árið 2037. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 9.000 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 150 m.kr. að nafnvirði, á ávöxtunarkröfunni 3,99%. Tilboðum að fjárhæð 150 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,99%.

OR180255 GB ber fasta 2,60% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 39.421 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 350 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,89-3,92%. Tilboðum að fjárhæð 350 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,92%.

Þá lauk Síminn einnig útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN260422 í gær.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.300 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,90-8,09%. Tilboðum að fjárhæð 1.220 m.kr. að nafnvirði var tekið á 8,05% flötum vöxtum.

Fossar fjárfestingarbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna og víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.