Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf í janúar.
Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í janúar var 24,5% í skuldabréfum og 20,5% í hlutabréfum og samsvarandi 19,1% og 17,8% í öllum viðskiptum.
Heildarvelta í janúar nam 268 milljörðum króna í skuldabréfum og 176 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 67,9% af heild í skuldabréfum og 76,7% í hlutabréfum.