25. mars 2026

Fossar sjá um útboð á grænum skuldabréfum OR á morgun

Orkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) efnir til útboðs á skuldabréfum á morgun, fimmtudaginn 26. mars 2026. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR031033 GB, OR180242 GB og OR180255.

OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 11.745 m.kr. í flokknum.

OR180242 GB ber fasta óverðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2042. Flokkurinn ber 4,50% fasta vexti og er uppgreiðanlegur árið 2037. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 12.498 m.kr. í flokknum.

OR180255 GB ber fasta 2,60% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 40.131 m.kr. í flokknum.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 fimmtudaginn 26. mars 2026. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 1. apríl 2026.

Nánari upplýsingar veita:

Snorri Hafsteinn Þorkelsson
Framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar
Sími: 516 6100
Netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@or.is

Matei Manolescu
Markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka
Sími: 522 4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is