25. febrúar 2026

Fossar ráðgjafi í tengslum við $20 milljón fjármögnunarlotu Reykjavík Geothermal

Fyrirtækjaráðgjöf Fossa fjárfestingarbanka var umsjónaraðili og ráðgjafi við nýafstaðna fjármögnunarlotu Reykjavík Geothermal. Um var að ræða fjármögnunarlotu B (e. Series B) að upphæð allt að 20 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði um 2,4 milljarða króna.

Lögfræðileg ráðgjöf við lotuna var í höndum Elements by BBA/Fjeldco og Juris lögmannsstofu.

Fjármögnunin var leidd af Innviðum fjárfestingum II slhf., innviðasjóði í stýringu hjá Summu rekstrarfélagi hf., auk þess sem núverandi hluthafar tóku þátt. Þá standa yfir viðræður við meðfjárfesta um þátttöku í fjármögnuninni.

Heildarumfang verður 80 milljarðar

Um er að ræða fyrsta áfanga fjármögnunar Reykjavík Geothermal, en gert er ráð fyrir að á næstu fjórum árum nemi heildarumfang fjárfestinga í þeim verkefnum sem nú eru í þróun hjá félaginu að minnsta kosti 80 milljörðum króna, að stærstum hluta á Íslandi. Undirbúningur að næstu fjármögnunarlotu er nú þegar hafinn.

„Verkefnið endurspeglar trú fjárfesta á uppbyggingu sem getu skapað verulegt langtímavirði fyrir íslenskt samfélag. Við hjá Fossum erum stolt af því að styðja við þetta metnaðarfulla ferðalag og hlökkum til áframhaldandi samstarfs þegar félagið tekur næstu skref í þróun og fjármögnun verkefna á komandi árum,“ segir Þórður Ágúst Hlynsson, framkvæmdastjóri Fyrirtækjaráðgjafar Fossa.

Magnús Dagur Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavík Geothermal, segir stóran áfanga að ljúka fjármögnunarlotunni til að styðja við mikinn vöxt sem sé framundan hjá félaginu.

„Að fá sterka fagfjárfesta á borð við Summu til að styðja við okkur er traustsyfirlýsing sem verður okkur ómetanleg í framhaldinu. Um leið er það viðurkenning fyrir íslenska orkugeirann í heild að stofnanafjárfestar bakki okkar reynslu og hafi trú á henni til langtímaverðmætasköpunar,“ segir hann.

Tilraunaboranir 2027

Reykjavík Geothermal er sérhæft leiðandi jarðvarmaþróunarfélag með yfir 15 ára alþjóðlega reynslu í ráðgjöf og þróun jarðhitaverkefna. Í dag eru helstu verkefni félagsins á Íslandi, Kanaríeyjum og í Mið-Austurlöndum.

Félagið hefur frá  2018 beint sjónum sínum að Íslandi og unnið að þróun jarðhitaverkefnis sem kennt er við Bolaöldu í Ölfusi. Í júní 2024 mælti verkefnastjórn rammaáætlunar með því verkefnið yrði sett í nýtingarflokk.

Við Bolaöldu er fyrirhuguð jarðhitavirkjun með 100 MW raforkuframleiðslu og 133 MW hitaveitu og er áætluð heildarfjárfesting í verkefninu allt að 60 milljörðum króna. Unnið er að umhverfismati vegna verkefnisins, en gert er ráð fyrir að tilraunaboranir eigi sér stað  á fyrri hluta árs 2027.