Fossar hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum á föstudaginn síðastliðinn.
27. ágúst 2024

Fossar fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Fossar hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum á föstudaginn síðastliðinn.  

Viðurkenningin byggir á úttekt á góðum stjórnarháttum og er veitt árlega. Með því að fylgja góðum stjórnarháttum styrkja fyrirtæki innviði sína og efla almennt traust. 

Umsjónaraðili er Stjórnvísi en viðurkenningin tekur mið af leiðbeiningum um stjórnarhætti útgefnum af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Alls hlutu 18 fyrirtæki viðurkenninguna að þessu sinni.