1. apríl 2026

Fossar fjárfestingarbanki ráðinn ráðgjafi Klappa vegna fyrirhugaðrar hlutafjáraukningar

Klappir Grænar Lausnir hf. hefur ráðið Fossa sem umsjónaraðila og söluráðgjafa í tengslum við fyrirhugaða hlutafjáraukningu á Íslandi. Í framhaldi stefnir félagið á skráningu á First North markaðinn í Svíþjóð og hefur ráðið Bergs Securities AB sem vottaðan ráðgjafa í Svíþjóð. Hlutafjáraukningin er fyrirhuguð hér heima á öðrum ársfjórðungi 2026 og skráningin í Svíþjóð á seinni hluta ársins 2026.

Hlutafjáraukningin, sem nemur að hámarki €8 milljónum er lykilþáttur í vaxtaráætlunum Klappa, bæði hvað varðar innri og ytri vöxt. Með skráningunni í Svíþjóð styrkir Klappir aðgengi sitt að alþjóðlegum fjármálamörkuðum, eykur fjölbreytni í fjármögnunarleiðum og stuðlar að uppbyggingu virks og öflugs markaðar fyrir hlutabréf félagsins.

Samkvæmt samningi Klappa við Fossa munu Fossar leiða undirbúning og framkvæmd hlutafjárútboðs Klappa á Íslandi.

„Klappir eru fyrirtæki með skýra framtíðarsýn og sterka stöðu á vaxandi markaði fyrir gagnadrifnar lausnir í auðlindastýringu og sjálfbærni. Við hlökkum til að styðja félagið í þessum mikilvæga áfanga og leiðbeina því í gegnum fyrirhugað hlutafjárútboð,“ segir Ástrós Björk Viðarsdóttir, verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf hjá Fossum.

„Við erum mjög ánægð með samstarfið við Fossa og treystum á víðtæka reynslu þeirra á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum,“ segir Þorsteinn Svanur Jónsson, forstjóri Klappa.