9. febrúar 2026

Breytingar á teymi einkabankaþjónustu Fossa

Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka, mun veita einkabankaþjónustu Fossa forystu næstu misserin samhliða starfi sínu sem forstjóri. Eignastýring fyrir viðskiptavini Fossa hefur um nokkurt skeið verið í höndum Íslenskra verðbréfa og mun Hreggviður Ingason, fjárfestingastjóri hjá Íslenskum verðbréfum, koma tímabundið að þjónustu við viðskiptavini bankans ásamt Steingrími og Erni Jónssyni.

Óttar Helgason og Jón Arnór Stefánsson, viðskiptastjórar einkabanka, hafa látið af störfum.