6. mars 2025

Fossar fjárfestingarbanki hf. Niðurstaða víxlaútboðs 5. mars 2025

Fossar fjárfestingarbanki hf. lauk víxlaútboði í gær. Bankanum bárust tilboð að nafnverði 800 m.kr. á bilinu 8,55% – 8,80% flötum vöxtum.

Samþykkt tilboð í 6 mánaða víxlaflokkinn FOS 25 0911 voru samtals 740 m.kr. á 8,80% flötum vöxtum.

Umsjón með útboðinu höfðu markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka.

Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 11. mars 2025.

Nánari upplýsingar:

Ernir Jónsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4002
Netfang: ernir.jonsson@fossar.is

Ásgrímur Gunnarsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4040
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is